Fyrirspurnir v. fjáfestinga

Netfang

fjarfestingar@laxey.is

Atvinnuumsókn

Netfang

job@laxey.is

Almennar fyrirspurnir

Netfang

info@laxey.is

Verkstjóri Viðlagafjöru – LAXEY

LAXEY leitar að öflugum verkstjóra til að leiða áframhaldandi uppbyggingu og fyrirtækisins við Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum.

Verkstjóri Viðlagafjöru ber ábyrgð á að tryggja að uppbygging LAXEY gangi áfram samkvæmt áætlun, bæði hvað varðar tíma og gæði. Starfið felur í sér daglega samhæfingu framkvæmda, samstarf við verktaka og eftirlit með framvindu verkefna á svæðinu.

LAXEY leggur áherslu á fagleg vinnubrögð, skýra verkefnastýringu og lausnamiðaða nálgun.

Helstu verkefni

  • Stýra og samræma framkvæmdum við áframeldisverkefni LAXEY
  • Tryggja að framkvæmdir gangi samkvæmt tímaáætlun
  • Samskipti og samstarf við verktaka, birgja og ráðgjafa
  • Eftirlit með framvindu framkvæmda á verkstað
  • Taka þátt í skipulagningu og forgangsröðun verkefna

Hæfniskröfur

  • Reynsla af verkefnastjórnun framkvæmda eða byggingarverkefna
  • Menntun eða reynsla sem nýtist
  • Góð skipulagshæfni og reynsla af samhæfingu margra aðila
  • Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni og geta til að vinna í öflugu teymi

Um LAXEY

LAXEY er landeldisfyrirtæki í Vestmannaeyjum sem framleiðir hágæða lax með sjálfbærum hætti. Fyrirtækið er í hröðum vexti og hefur byggt upp öfluga landeldis- og seiðastöð í Eyjum. Nú þegar er hafin regluleg framleiðsla og vinnsla.

Við leitum að einstaklingi sem vill taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu LAXEY sem skiptir máli fyrir bæði fyrirtækið og samfélagið í Vestmannaeyjum.

Umsóknir og fyrirspurnir

Umsóknir, merktar „Verkstjóri“, sendist á bragi@laxey.is & dadi.palsson@laxey.is

Fyrirspurnir má einnig senda á sömu netföng.

Um er að ræða framtíðarstarf. Umsóknarfrestur er til og með 27. mars. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

default