Í dag er eitt ár liðið frá því að fyrsta slátrunin fór fram hjá LAXEY. Sá dagur markaði stór tímamót í sögu félagsins og upphafið að nýjum kafla.
Síðan þá hefur verið slátrað í hverri einustu viku, 52 vikur samfleytt.
Það er sérstaklega gaman að líta til baka yfir þetta fyrsta ár og sjá hversu langt við höfum komist. Ótrúlega margt hefur gerst á stuttum tíma og við höfum náð mörgum mikilvægum áföngum saman.
Fyrsta slátrunin var afrakstur mikillar vinnu og samstillts átaks starfsfólks LAXEY. Það sama má segja um allt það sem hefur áunnist á þeim 52 vikum sem síðan eru liðnar.
Eitt ár er að baki og við hlökkum til þess sem fram undan er.



