Boð á samráðs- og upplýsingafund
LAXEY býður íbúum Vestmannaeyja, hagsmunaaðilum, félagasamtökum, opinberum aðilum og öðrum áhugasömum á samráðs- og upplýsingafund um starfsemi fyrirtækisins.
Fundurinn er liður í samráði LAXEY við nærsamfélagið og hagsmunaaðila í samræmi við kröfur ASC-vottunar.
Markmið fundarins er að:
- kynna starfsemi LAXEY og stöðu uppbyggingar,
- fara yfir umhverfis- og sjálfbærnimál,
- ræða fiskheilbrigði og fiskvelferð,
- upplýsa um hvernig staðið er að meðferð fiska, þar á meðal notkun lyfja og annarra meðferða þegar þeirra er þörf,
- ræða áhrif starfseminnar á samfélagið,
- skapa vettvang fyrir opið samtal þar sem gestir geta komið á framfæri spurningum, ábendingum og athugasemdum.
Dagsetning: Þriðjudaginn 21.Júlí
Tími: 17:00
Staður: Seiðastöð Laxey, Strandvegur 104
Allir eru velkomnir.

default


