Í opinberri heimsókn til Vestmannaeyja föstudaginn 9. janúar 2025 heimsóttu forsetahjónin, Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason, Laxey.
Tekið var á móti forsetanum og fylgdarliði í seiðastöð Laxey á Strandvegi, þar sem Daði Pálsson framkvæmdastjóri félagsins og Sigurjón Óskarsson, en fjölskylda hans er kjölfjárfestir í Laxey, tóku á móti gestum og leiddu þau um starfsemina.
Í heimsókninni fengu forsetahjónin innsýn í hvernig Laxey hefur á skömmum tíma byggt upp öfluga seiðastöð í nýrri og fullkominni byggingu, þar sem notað er endurhringrásarkerfi til að hámarka endurnotkun vatns og tryggja stöðug gæði í framleiðslu. Einnig var farið yfir uppbyggingu áframeldisstöðvar félagsins í Viðlagafjöru, þar sem áfangi 1 er nú þegar kominn í fullan rekstur og áfangi 2 er langt kominn ásamt því að regluleg slátrun er hafin.
Forsetahjónin fengu jafnframt kynningu á framtíðaráformum Laxey, þar sem lögð er áhersla á sjálfbæra uppbyggingu og nýsköpun í landeldi.
Við þökkum kærlega fyrir skemmtilega og eftirminnilega heimsókn.



